- Forstjóraskipti


Höskuldur Ásgeirsson hefur gert samkomulag við félagið um að hann láti af
störfum sem forstjóri Nýsis hf  þann 15.  nóvember nk. Höskuldur tók við starfi
forstjóra þann 1. desember  2007 og hefur stýrt félaginu í gegnum miklar
aðhalds- og hagræðingaraðgerðir  í rekstri  sem skilað  hafa miklum árangri, 
ásamt því að  leysa úr þeirri erfiðu stöðu sem uppi  hefur verið hjá félaginu 
sökum lánsfjárkreppunnar. Höskuldi eru þökkuð  vel unnin störf fyrir félagið. 
Sigfús Jónsson tekur við starfi forstjóra félagsins. 

Nánari upplýsingar veitir Sigfús Jónsson í  síma 8997802