- Breytt varastjórn


Stjórn Icelandic Group hf. kt. 461296-2119 hefur borist tilkynning frá Magnúsi
Þorsteinssyni, kt. 061261-5409, Eyrarlandsvegi 22, 600 Akureyri, þess efnis að
hann hafi ákveðið að draga sig úr varastjórn félagsins frá og með deginum í
dag. 

Með vísan til 2. mgr. 64. gr. laga nr. 2/1995 um hlutafélög telur stjórn
félagsins ekki ástæðu til að fram fari kosning varamanns í hans stað og hefur
því ákveðið að fresta kjöri til næsta aðalfundar.