Hekla fasteignir - Ársuppgjör 2006


Ársreikningur Heklu fasteigna ehf. 2006

Fjárhæðir eru í þúsundum króna			
			
			
Rekstur:			
	2006		2005
	 		 
Rekstrartekjur .................................	184.108		84.000
Rekstrargjöld ..................................	39.544		17.728
			
Rekstrarhagnaður (EBITDA) .....................................................	144.564		66.272
			
Matsbreyting fjárfestingaeigna ..........	212.962		-16.000
Fjármunatekjur og (fjármagnsgjöld) ..	-260.183		-50.644
Hagnaður (tap) fyrir tekjuskatt .........	97.343		-372
Tekjuskattur ..................................	-17.522		-67
Hagnaður (tap) ársins .....................	79.821		-439
			
			
Efnahagur:			
	31.12.2006		31.12.2005
			
Eignir samtals ...............................	1.944.469		1.584.000
Eigið fé ........................................	180.806		100.985
			
			
Fjárhagsleg þróun:	 		 
	2006		2005
			
Handbært fé frá rekstri ...................	75.055		31.945
			
Eiginfjárhlutfall ..............................	9,30%		6,40%


Ársreikningur Heklu fasteigna ehf. fyrir árið 2006 var staðfestur af stjórn og framkvæmdastjóra félagsins á stjórnarfundi þann 22. mars 2007.  Ársreikningurinn er gerður í samræmi við lög um ársreikninga og settar reikningsskilareglur.  Ársreikningurinn hefur fengið fyrirvaralausa áritun löggilts endurskoðanda félagsins.

Rekstur

Heildartekjur Heklu fasteigna ehf. námu á árinu 184,1 millj. kr. og rekstrargjöld námu 39,5 millj. kr.  Rekstrarhagnaður, EBITDA, nam því 144,6 millj. kr.  Að teknu tilliti til matsbreytinga fjárfestingaeigna og fjármagnsgjalda nam hagnaður fyrir tekjuskatt 97,3 millj. kr. og hagnaður ársins nam 79,8 millj. kr.

Efnahagur

Heildareignir Heklu fasteigna ehf. voru í árslok bókfærðar á 1.944,5 millj. kr.  Heildarskuldir félagsins námu á sama tíma 1.763,7 millj. kr.   Í árslok 2006 var eigið fé Heklu fasteigna ehf. 180,8 millj. kr. og eiginfjárhlutfall 9,3%.

Nánari upplýsingar veitir

Birgir Sigurðsson, framkvæmdastjóri, sími: 590 5000, netfang: birgir@hekla.is.

Attachments

Hekla fasteignir - 12 2006.pdf