Sparisjóður Vestfirðinga - Ársuppgjör 2006


Lykiltölur
í millj. kr.
		2006	     2005	Breyting	2004	2003	2002
Rekstrarreikningur:						
Vaxtatekjur	905 	779 	16,3%	621	706 	764
Vaxtagjöld	743 	506 	46,7%	347	389 	453
Hreinar vaxtatekjur 	163 	272 	-40,2%	274	316 	311
Aðrar rekstrartekjur	1.070 	561 	90,8%	223	268 	118
Hreinar rekstrartekjur 	1.232 	833 	47,2%	497	584 	429
Önnur rekstrargjöld	392 	355 	10,5%	311	327 	287
Framlag í afskriftareikning útlána	233 	221 	5,1%	222	235 	132
Hagnaður fyrir skatta  	607 	257 	136,7%	(36)	22 	10
Tekju- og eignarskattur	193	(44)		9	(3)	1
Hagnaður ársins 	801 	213 	276,6%	(27)	56 	9
						
Efnahagsreikningur:						
Eignir:						
Sjóður og kröfur á lánastofnanir	174 	713 	-75,6%	376	476 	427
Útlán	6.943 	5.949 	16,7%	5.631	5.763 	5.416
Markaðsverðbréf og eignarhlutir í félögum	2.130 	1.350 	57,8%	519	767 	576
Aðrar eignir	410 	247 	66,3%	336	294	327
Eignir samtals	9.657 	8.259 	16,9%	6.862	7.299 	6.746
							
Skuldir og eigið fé:						
Skuldir við lánastofnanir	8	4	118,0%	154	2 	643
Innlán	5.042 	4.444 	13,5%	3.941	4.288 	3.753
Lántaka	2.126 	2.255 	13,5%	1.905	1.933 	1.473
Aðrar skuldir	78 	84 	-6,8%	67	60 	65
Skuldbindingar	34	48	-29,1%	25	27	22
Víkjandi lán	564 	424 	33,0%	151	251 	155
Eigið fé	1.805 	1.000 	80,5%	619	737 	635
Skuldir og eigið fé samtals	9.657 	8.259 	16,9%	6.862	7.299 	6.746
							
							
Eiginfjárhlutfall skv. CAD	13,5%  	12,0%  		11,7%  	11,8%  	9,9%  
Arðsemi eigin fjár	80,2%  	27,7%  		-4,3%  	7,0%  	1,6%  
Vaxtamunur	1,8%  	3,5%  		4,0%  	4,4%  	4,7%  
Afskriftir sem hlutfall af útlánum	3,6%  	3,7%  		3,9%  	4,1%  	1,9%  
Rekstrarkostnaður af hreinum rekstrartekjum	31,8%  	42,6%  		62,6%  	56,0%  	66,9%  
Innlánsaukning	13,5%  	3,6%  		5,0%  	8,8%  	23,6%  
Útlánsaukning	16,7%  	3,2%  		3,8%  	2,3%  	6,2%  
Meðalstöðugildi	43 	43 		35	35 	32  

 
Rekstur

Hagnaður Sparisjóðs Vestfirðinga nam 800,6 millj. kr. á árinu 2006, samanborið við 212,6 millj. kr. hagnað á árinu 2005.  Arðsemi eigin fjár á árinu 2006 var 80,2% en hún var 27,7% árið áður.

Vaxtatekjur námu alls 905,5 millj. kr. á árinu 2006 og hækkuðu um 16,3% frá árinu áður.  Vaxtagjöld námu 742,7 millj. kr. og hækkuðu þau um 46,7% frá fyrra ári.  Hreinar vaxtatekjur sparisjóðsins námu því 162,8 millj. kr. en þær voru 272,4 millj. kr. á síðasta ári.  Aðrar rekstrartekjur voru 1.069,5 millj. kr. og hækkuðu um 508,9 millj. kr. frá árinu 2005.  Hreinar rekstrartekjur námu 1.232,3 millj. kr., en þær námu 833,0 millj. kr. árið áður.
 
Rekstrargjöld sparisjóðsins námu 392,3 millj. kr. en námu 355,1 millj. kr. á árinu 2005.

Framlag í afskriftarreikning útlána nam 232,7,4 millj. kr., en var 221,4 millj. kr. á árinu 2005.

Efnahagur

Útlán sparisjóðsins námu 6.942,9 millj. kr. og aukast um 993,9 millj. kr. frá árinu 2005 eða um 16,7%.  Markaðsverðbréf og eignarhlutir í félögum námu 2.130,1 millj. kr. og hækka um 57,8%.  Allar eignir sparisjóðsins í skráðum verðbréfum eru færðar á markaðsverði.

Eigið fé

Eigið fé Sparisjóðs Vestfirðinga í árslok 2006 nam 1.805.2 millj. kr. og víkjandi lán námu 564,0 millj. kr. eða samtals 2.369,2 millj. kr.  Eiginfjárhlutfall samkvæmt CAD-reglum er 13,5% en það var 12,0% í árslok 2005.

Annað

Sjóðurinn skilar 800.6 millj. kr. hagnaði á árinu 2006, en umtalsverð hækkun varð á markaðsverðbréfum sjóðsins á árinu en gengishagnaður sjóðsins nam 944,4 millj. kr. á árinu. 

Eiginfjárstaða sjóðsins hefur styrkst á árinu, en eigið fé og víkjandi lán sjóðsins nema nú 2.369 millj. kr. og er eiginfjárhlutfall hans er 13,5% í árslok.  

Aðalfundur Sparisjóðs Vestfirðinga verður haldinn í 16. mars 2007.  Stjórn sparisjóðsins leggur til að greiddur verði 8,0% arður á árinu 2007 vegna ársins 2006.


Sparisjóður Vestfirðinga

Nánari upplýsingar veitir
Angantýr V. Jónasson sparisjóðsstjóri
sími 450 2500


Attachments

Sparisjour Vestfiringa 12 2006.pdf